Velkominn á gistiheimilið Stórholti |
Gistiheimilið á Akureyri er við Hörgárbraut rétt utan við miðbæinn. Á gistiheimilinu er mjög vel útbúið gestaeldhús og setustofa. Góð aðstaða er fyrir hreyfihamlaða. Móttakan er opin frá 8.00 til 22.00. Gistiheimilið hefur 2 góð og vel búin eldhús ásamt borðsal við hvert þeirra. Hægt er að fá herbergi með sturtu og salerni. Heitur pottur er í garðinum til afnota fyrir gesti gistiheimilisins.
Einnig eru til leigu 2 glæsileg sumarhús sem eru leigð út til lengri eða skemmri tíma. Hvort um sig rúmar allt að 8 manns. Aðgangur er að heitapottinum og gildir það eingöngu fyrir sumarhúsin. Einnig er hægt að leigja 3ra manna smáhýsi með salerni og vaski.
Höfuðstaður Norðurlands býður upp á fjölbreytta afþreyingu. Má þar m.a. nefna sund, golf (átján holu völlur), hestaferðir, gönguferðir á Súlur, veiði og heimsóknir í skrúðgarðinn, listagalleríin eða á náttúrugripasafnið.
Á veturna er gistiheimlið kjörin staður fyrir einstaklinga og hópa sem vilja nýta sér hina frábæru skíðaaðstöðu sem er á Akureyri og í nágrannasveitarfélögunum.